- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
900

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

900

FERÐIR, SIGLIiNGAR OG SAMGÖNGUR.

Samningur þessi veitti íslendingum mikil rjettindi í
Noregi, en að eins gegn miklum skyldum við konung.
Um efni hans má visa til Islenskra smárita, nr. II.
Hjer skal að eins getið þess, sem snertir málefni þetta
sjer-staklega.

íslendingar skyldu hafa höldsrjett í Noregi á meðan þeir
voru í kaupferðum. Ef þeir staðfestust þar, höfðu þeir
höldsrjett þrjá vetur, en síðan slikan rjett, sem menn báru
þeim vitni til.

íslendingar máttu höggva við þann allan í mörk
konungs, er þeir vildu; var það eigi lítils virði fyrir þá
á meðan þeir áttu kaupskip. Er eigi undarlegt, að þeir
fóru opt utan að sækja húsavið, er þeir höfðu þennan
rjett. ’

íslendingar áttu útför til Islands, nema vis væri her í
Noregi. Með þessu vildu þeir tryggja sjer það, að
Noregs-konungur bannaði þeim ekki að fara heim til sín. En þetta
gat eigi náö til þeirra Islendinga, sem gerðust konungi
hand-gengnir, því að þeir máttu ekkert fara frá hirðinni nema
með leyfi konungs.

og háskasamlegt. Teiti Gissurarsyni liefur verið kunnugt um rjett
íslendinga í Noregi og samning þennan. Hann hefur þá gerst aptur
foringi landa sinna, og fengiö föður sinn, lögsögumanninn og fleiri
merka menn, sem mundu vitnisburð afa hans, til þess að vitna um
rjett konungs á íslandi og íslendinga í Noregi og staðfesta það með
eiði. Af því að Teitur Gissurarson var foringi þessa máls, hefur
hann einnig staðfest vitnisburðinn, og hann hefur að öllum líkindum
getað borið um það með rjettu, þótt hann hafi eigi getað sökum
æsku verið við, er afi hans bar vitni um þetta með öðrum mönnum
á alþingi, því að afi hans mun hafa sagt honum það síðar og kent
honum rjett þennan. Isleifur biskup kendi mörgum ungum mönnum,
eins og kunnugt er, og ekkert er líklegra en að hann hafi kent líka
Teiti sonarsyni sínum, þá er hann var drengur, og faðir hans var i
förum. Hann mun hafa sagt honum margt úr lögum landsins og a’
ýmsum viðburðum. Eigi er þá annað eðlilegra, en að biskup hafi
1-myndað sjer. að Teitur mundi einhvern tíma fara utan, eins og hann
sjálfur og margir ættmenn hans, og jafnvel vera i fiirum nokkur
ár; fátt þurfti drengurinn þá fremur að þekkja en rjett
íslend-inga í Noregi. Isleifur biskup hefur því kent hann sonarsym
sínum og sagt honum af vitnisburði sínum, enda hefur
bisk-up síst viljað láta hann gleymast; reynslan hafði kent honum
annað.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0912.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free