Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
nr. 1
sólarljóð
65
Af þessu losi, sem í íljótu bragði virðist vera á
uppi-stöðu1) kvæðisins, hafa ágætir vísindamenn viljað ráða,
að sumir af þáttum kvæðisins væru siðari viðaukar eður
og sjálfstæð kvæði, samtíða Sólarljóðum, sem ekki ættu
neitt skilt við þau. S. Bugge vildi fella framan af
kvæð-inu bæði Dæmaþátt og Ráðatal (1.—32. er.), er hann
taldi síðar við aukið. F. J. heldur, að Dæmaþáttur (1.—
24. er.) sje sjerstakt kvæði, nokkurn veginn jafngamalt
Sólarljóðum, og telur Rúnaþátt ásamt 54., 55. og 56. er.
síðari viðbót; það sem eftir verður, þegar þessu er kastað
burt, nefnir hann »hin eiginlegu Sólarljóð«. Enn þá
nær-göngulli við kvæðið er þó Guðbrandur Yigfússon. Útgáfa
hans í Corpus poet. Boreale I 202.—217. bls. er gott
dæmi þess, hvernig ekki má fara með gamalt rit. Hann
bír sjer til úr kvæðinu tvö sjerstök kvæði. Annað þeirra
kallar hann »SólarIjóð«, og nær það ifir þriðja þátt
kvæðisins og niðurlagserindin (33.—75. og 81.—82. er.).
Hitt kvæðið kallar hann »The Christian’s Wisdom«, og
nær það ifir alt það af kvæðinu, sem ekki kemst firir í
»Sólarljóðum« útgefandans og 2l/s erindi úr
Hávamál-um(!) að auk.
Að minni higgju eru Sólarljóð, eins og þau eru til
vor komin, eitt samstætt kvæði frá upphafi til enda,
samið af einum og sama manni og laust við siðari
iauka. Og þó að þættirnir, sem það er samsett af, sjeu
nokkuð sundurleitir, þá má þó, ef vel er leitað, finna
þann rauða þráð, sem gengur gegnum þá alla, sameinar
þá og gerir þá að einni heild, enn það er hin
siðferðis-lega (eþiska) stefna, sem einkennir kvæðið frá firsta til
síðasta erindis. Þessi stefna velur sjer að eins
mismun-andi form. Stundum kemur hún fram i dæmisögum —
svo i Dæmaþætti og ekki síður í »sólarsögu« sálarinnar
af sjálfri sjer, um líf sitt og dauða og lífið hinumegin,
sem er ekki annað enn ein stór fræðandi dæmisaga —
stundum i beinum ráðleggingum eða kristilegum lifsregl-
1) Svo nefni jeg það sem kallað er útlendu nafni
»kom-position«, og er tikingin dregin af vefnaði.
5
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>