Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
VÍNLA.NDSFERÐIRNA.R 35
Svo segir, ag »hverr lækr var þar fullr af fiskum«, i
Hópi. Hefur þetta varla þótt gegua neinni furðu, en
víst var þess getandi meðal annara gæða þessa góða
lands.— Hitt sýnist furðulegra, hversu þeir öfluðu
heilag-fiskis: »Þeir gerðu grafir þar sem mættist landit (og
sjórinn) ok flóðit gekk ofast, ok þá er út fell sjórinn
váru helgir fiskar i gröfunum«. En svo undarleg sem
þessi lúðuveiði kann að virðast, þá mun sagan þó sönn.
W. H. Munro segir i sögu borgarinnar Bristol,1) að
sams konar veiðiaðferð sje höfð þar enn. — I Hópi
»var mikill fjöldi dýra á skóginum meðr öllu móti«.
Dýr er hjer sömu merkingar og dyr á dönsku og deer
á ensku; táknar orðið ýmsar tegundir dýra af
hjarta-kyni. Er það alkunnugt, að hvarvetna á þessum
slóð-um, sem hjer getur verið um að ræða, var fyrrum
mjög mikið af dýrum, og er töluvert sums staðar enn.
Á Nýfundna-landi kvað vera mikið um hinn
svo-kall-aða »rauða hjört«; ber Storm2) annan höfund fyrir
þvi, að nokkrum árum áður hafi enskur
veiðimanria-hópur lagt 2000 dýr að velli á einu einasta sumri.
í sögunni er sagt allgreinilega frá viðskiptum þeirra
Karlefnis við Skræling(j)a og árás þeirra. Er sú frásögn
svo löng, að ekki verður tekin hjer öll, en vísað á
sög-una (Hauksbók, bls. 439—41). En jeg vil geta nokkurra
atriða hjer sjerstaklega.
Menn þeir, er fundu þá Karlsefni i Hópi, eru nefndir
í sögunni skrælingar. — Nýrri mynd af sama orði, sem
heiti á Eskimóum, er skrælingjar, en orðið skrælingur
er þó til í málinu, sbr. enn fremur orðin skræla, skrælna
og skræl-þur. Ari fróði hefur eflaust ritað
Islendinga-bók áður en Eiriks saga rauða var samin. Hann segir
að Grænlendingar kalli »þá þjóð, er Vínland hefir bygt«,
Skrælinga, og að það megi skilja af þeim keiplabrotum
og steinsmíði, sem landnámsmenn á Grænlandi fundu
þar, »at þar hafði þess konar þjóð farit«. Þegar þeir
1) History of Bristol, bls. 22; — eptir Babcock.
2) Aarb. f. nord. Oldkh. og Hist. 1887, bls. 337.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>