- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Sjötta Bindi /
36

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

36

VÍNLA.NDSFERÐIRNA.R 36

Þorfinnur voru á Grænlandi, höfðu menn enn ekki
sjeð þessa eða aðra þess konar þjóð þar og ekki enn
er Ari ritaði þetta, enda segir hann ekki beinlínis, að
Grænlendingar kalli Eskimóa Skrælinga, heldur þá menn,
sem þeir Þorfinnur höfðu fundið á Vínlandi. Annað
mál er það, að þegar Grænlendingar síðar sáu Eskimóa
og urðu fyrir ofsóknum þeirra, þá kölluðu þeir þá enn
þessu gamla heiti, sem þeir höfðu gefið þeim íyrirfram,
og sem Eskimóar hafa hjer á landi enn i dag.

En var þetta rjett ályktað, að sams konar þjóð
hefði farið um í Grænlandi og sú, »er Vínland hefir
bygt«, og Grænlendingar kölluðu á 12. öld Skrælinga?
Um það hafa menn deilt og munu nú flestir á þeirri
skoðun, að þjóðfræðilega talað sje þetta ekki alls kostar
rjett. Sú þjóð, er farið hafði i Grænlandi áður en
Ei-rikur rauði nam þar land, hefur eflaust verið
Eski-móar, sem síðan voru einir um að bera þjóðarheitið
Skrælingar. En sú þjóð, er þeim Þorfinni lenti saman
við í Hópi, hefur eflaust verið eins konar Indíánar.
Þeir, sem um þetta hafa ritað einna greinilegast i þessu
sambandi, eru Gustav Storm, i fyr-nefndri ritgerð,1) og
W. H. Babcock i bók sinni (bls. 139—58), og eru þeir
báðir á þessari skoðun.

En var það rangt, að nefna þessar þjóðir sama
nafni eða líta svo á, að þær væru sams konar?

Mag. K. Birket-Smith byrjar þannig grein sina um
Indiána i Salmonsens Iíonversationleksikon: Dlndianere,
det almindelig brugte Navn for de oprindelige Beboere
af Amerika, ofte med Udelukkelse af Eskimoerne. En
skarp Sondring mellem Indianere og Eskimoer er dog
kunstig«.s) Þegar vísindamenn nú á dögum lita þannig
á, virðist það ekki hafa verið alveg fjarri lagi, að kalla
sama nafni þann þjóðflokk, sem var á Vínlandi, og
þann sem verið hafði á Grænlandi. Enda voru þeir
tveir þjóðflokkar vissulega ekki frábrugðnari hvor öðr-

1) Aarb. f. nord. Oldkh. og Hist. 1887, bls. 346-55.

2) Sjá Salmonsens Konv.-leks., 2. Udg., XII. Bind, bls. 276.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:49 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/6/0054.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free