- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Sjötta Bindi /
39

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

VÍNLA.NDSFERÐIRNA.R 39



sér. Gekk svá kaupstefna þeirra um hríð. Þá tók at
fættast skrúðit með þeim Karlsefni ok skáru þeir þá
svá smátt i sundr, at eigi var breiðara en þvers fingrar
ok gáfu Skrælingar þó jafnmikit fyri sem áðr eða
meira«.

Það horfðist ekki illa á, að stofna til nýlendu i Hópi,
þar sem alt fór svo friðsamlega fram og landið var
svo dásamlegt. — En öll þessi dýrð tók brátt enda og
það með skelfingu: »Þat bar til, at griðungr hljóp úr
skógi, er þeir Karlsefni áttu, ok gellr hátt. Þat fælast
Skrælingar ok hlaupa út á keipana ok reru siðan suðr
fyri landit«.

Þetta ógæfusamlega atvik, þetta ófriðlega
nauts-öskur, varð til að rjúfa friðinn i Hópi — og seinka
landnámi Norðurálfu-manna i Ameriku um 5 aldir.

Að villimennirnir i Hópi fældust svo ákaflega við
að sjá og heyra til griðungsins, sýnir að þeir hafa ekki
þekt nautgripi. Þetta hefur nú sumum þótt koma illa
heim við það, að vísundar voru fyrrum í stórhópum
um Norður-Ameriku og hefur orðið vart alt fram á
siðustu aldir nærri austurströndinni. En ekki munu þó
fara sögur af því, að þeir hafi sjezt á Nýja-Englandi
nokkru sinni og mun Babcock hafa rjett fyrir sjer i
þvi, að þeir hafi að líkindum aldrei farið norður fyrir
Hudsons-fljót.

Sagan um griðunginn er mjög sennileg. Mörg dæmi
eru til þess, að huglitlum mönnum hefur staðið mikill
ótti af griðungum, ekki sizt, ef þeir ljetu ófriðlega. Þeir
Þorfinnur hafa að líkindum ekki gert neitt til að draga
úr ótta Skrælingja, heldur sýnt þeim jafnvel háð og
fyrirlitning vegna hræðslu þeirra. í annan stað hafði
ekki framkoma þeirra við Skrælingja verið á neinn veg
svo, að Skrælingjar ættu þeim nokkuð gott upp að unna.

Eptir 3 vikur komu Skrælingjar aptur og rjeðust á
þá Karlsefni með ógrynni liðs. »Yarð þar skothrið hörð,
þvi at skrælingar höfðu valslöngur. Þat sá þeir
Karls-efni, at skrælingar færðu upp á stöng knött
stundar-mikinn, því nær til at jafna sem sauðarvömb, ok helzt

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:49 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/6/0057.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free