- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Sjötta Bindi /
50

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

50

VÍNLA.NDSFERÐIRNA.R 46

finns eru þeir byskuparnir Þorlákur Runólfsson og
Björn Gislason i 3. lið og Brandur byskup
Sæmundar-son í 4.

Það varð Þorfinni að visu ofurefli, að stofna
ný-lendu i hinni nýfundnu heimsálfu. Hann var enginn
vikingur nje herkonungur sjálfur og átti ekki neina þá
stórhöfðingja að, jarla nje konunga, er hann gæti sótt
ærinn liðsafla til. Færeyjar, ísland og Grænland voru
auð lönd og óvarin, er þeir Grímur Kamban, Ingólfur
Arnarson og Eirikur rauði stofnuðu þar nýlendur. En
í Vinlandi voru fyrir vopnum búnir þjóðflokkar, sem
að likindum hafa verið vanir ófriði innbyrðis. Þær
þjóðir, sem stóðu að baki Þorfinni, voru fámennar
og fátækar, en bjuggu við landrými mikið og áttu nóg
með sig. Yfir úthaf var að sækja hvaðanæva að til hins
nýfundna lands, langa leið, torsótta og hættulega.
Norð-menn, Danir og Svíar höfðu stofnað merkar nýlendur
á síðustu timum, og þar sem erfiðara var fyrir í
lönd-um, en þar sem svo var ástatt, voru engin úthöf í
milli, enda mikinn auð og hvers konar föng að fá. Á
Vinlandi þurfti alls að afla úr skauti náttúrunnar. Þeir
þjóðflokkar, sem þar höfðust við, voru
menningar-snauðir flökkulýðir, sem lifðu við veiðiskap. —
Menn-ingarþjóðir álfunnar bjuggu miklu sunnar. Þaðan, og
þá fyrst er Norðurálfumenn höfðu rutt sjer þar til rúms
með báli og brandi, og svo frá heimalöndum þeirra
beinlinis, varð komið á nýlendustofnun á Vinlandi, er
liðið höfðu langir timar. 1 skauti þeirrar menningar,
sem reis þar upp, settust að, þar og i nálægum
lönd-um, loks á næstliðinni öld, afkomendur Þorfinns og
fjelaga hans, og mynduðu islenzkar nýlendur, sem ei’u
nú stærri og fjölmennari en að likindum hefði mátt
verða um hans tíð. Og endurminningin um frægðarför
Þorfinns karlsefnis hefur ekki fallið í gleymsku meðal allra
þeirra, er nú byggja Vinland hið góða. Á síðari tímum hafa
vinlenzkir menn og konur lagt mikla alúð við að
rann-saka og rita um hinar fornu, islenzku frásagnir um hann.
Og haustið 1920 reisti göfugur og góður maður, J. Bunford

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:49 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/6/0068.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free