- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Sjötta Bindi /
290

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

290

UM ÍSLENDINGASÖGUR

Þetta gerist eftir sögunni á alþingi 1031 á firsta
lög-sagnarsumri Steins Þorgestssonar. Til þess að skilja
rjett staðinn i báðum handritaflokkum, verður maður
að rifja upp, livað sagan segir á undan um sekt Grettis.
Hann er first gerður sekur á alþingi 1011 eftir timatali
sögunnar,1) enn aðeins til 3 ára, og þá sekt afplánar
liann með því að fara utan samsumars og vera utan 3 ár,
kemur út 1014 um sumarið (17.—28. k.). Árið 1014—
1015 dvelur hann lijer á landi ósekur. Næsta sumar (1015)
frjettist, að Ólafr digri (helgi) sje kominn til rikis i
Nor-egi, og þá fer Grettir utan um liaustið. Það er þessi vetur,
sem Þórir úr Garði vill draga frá sektartima Grettis eftir
B-flokknum. Enn þó svo sje gert, þá verða þó
sektar-árin ekki færri enn 19, ekki „18", eins og stendur i sama
flokks handritum.2) í utanferð sinni haustið 1015 verður
Grettir valdur að dauða Þórissona og er gerður sekur firir
það á alþingi næsta ár, 1016 (46. k.), og sama haust „at
áliðnu sumri" (k. 47,1) kemur Grettir út úr ferð sinni.
Það er þessi kafli úr sumrinu frá alþingi til siðustu vikna
sumarsins, i liæsta lagi 15 vikur, sem A-flokkurinn segir,
að Þórir hafi viljað draga frá tuttugu árunum, sem liðin
vóru síðan Grettir fjell i sekt, enn þá verður það rangt
i reikningi sömu handrita, að frá sekt væri liðin 19 ár
timanum frá alþingi til útkomunnar, liklega er það
ónákvæmt til orða tekið, upphaflega hefur vist staðið i
sögunni, að Þórir liafi viljað draga frá timann frá dauða
Þórissona lil al])ingis, þegar sektin var dæmd, og"
sömu-leiðis timann frá sektardómnum til útkomunnar sama
sumar. Þá verður rjett, sem stendur i þessum handritum,
að sektartíminn verður 19 ár timanum frá
sektardómn-uni siðara til útkomunnar. Báðir handritaflokkar eru þvi i
mótsögn við sjálfa sig og tímatal sögunnar, báðir hafa
afbakað textann með þvi að fella úr, annar árið, sem
Grettir var hjer á landi ósekur, liinn árið, sem hann var
í Noregi 1015—16. Hinn upphaflegi texti virðist hafa

1) Sbr. Boer, XXXIV. bls. — 2) Guðbrandur Vigfússon og Boer
vilja breita „18" i „19", enn þaö hafa þeir ekki leifi til.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:49 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/6/0564.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free