- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Sjötta Bindi /
291

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

GRETTIS SAGA

291

verið lijer um bil svona: „Þá gekk at Þórir ór Garði ok
leitaði at færa í alla trega, þá er mætti ok gat hann fundit,
at Grettir liafði verit einn vetr út hér, svá at hann var
ósekr (152, 151 og Upps.) ok annan í Noregi ok (b. v.
af mjer) komit út at áliðnu sumri ok hafði eigi hér á
landi þat i sekt setit (551 og 150) ok urðu þá 18 (152,
151, Upps.) tólfmánuðir ok því fátt í, er frá þvi alþingi
var ok til þess er Grettir kom út um liaustit, er hann
liafði hér í sekt setit (551, 150). Þá sagði lögsögumaðr,
at engi skvldi lengr i sekt vera enn 20 vetra alls, þó at
hann gerði útlegðarverk á þeim tímum (551, 150) ok (b.
v. af mjer) þó at nokkurr vetr vrði milli sekta (152, 151,
Upps.)". Ef svo er ritað, þá verður þessi staður i fullu
samræmi við sjálfan sig og við söguna á undan, og engin
ástæða til að skoða þetta sem innskotsgrein, eins og Boer
gerir.

Höfundur vitnar beint i þessar sögur: Laxdælu (k.
10,5), Bandamanna sögu (k. 14,3), Eiríks sögu jarls (k.
19,5) og Bjarnar sögu Hitdælakappa (k. 58,7). Allar
þessar sögur hefur hann notað, einungis er það óvist,
hvaða sögu af Eiríki jarli Hákonarsini hann hefur haft
firir sjer. Af honum er nú ekki til nein sjerstök saga,
heldur er saga hans fljettuð inn i Noregskonungasögur
þær, sem geimst hafa. Liklegast, að tilvitnunin eigi ekki
við sjerstaka sögu, heldur við kafla í einhverjum
Noregs-konungasögum, enn það sem sagan segir um Eirik, er
fíest svo alraens eðlis, að ómögulegt er að segja, hvaða
konungasögur þetta liafi verið. Þar sem sagan segir frá
Hafursfjarðarorustu, segir hann, að við liana komi flestar
sögur, og á þar víst sjerstaklega við Noregskonungasögur
(2, 4).1) Enn fremur nefnir liann Böðmóðs sögu ok
Grímólfs ok Gerpis (hkl. rjettara Böðmóðs sögu ok
Grim-ólfs gerpis), enn þessi tilvitnun er beint tekin eftir
Land-námu, sem höfundur afritar á þessum stað (12, 19). Enn
auk þessara sagna, sem liann nefnir, liefur hann þekt og

1) Líkt segir Vatnsdœla, 8. k, um Hafursfjarðarorustu („sem víða
getr i sögum").

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:49 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/6/0565.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free