Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
342
UM ÍSLENDINGASÖGUR
nokkrum og skiftu verkum með sjer, þannig að Alfr skal
sækja vatn, enn Finnbogi kveikja eld. Meðan Finnbogi
er að blása að eldinum, veitir Álfr honum tilræði, enn
það mistekst; lendir þeim þá saman, og likur með því,
að Finnbogi drepur Álf. Mjög lík er sagan um Hallfreð
og Önund stigamann i Hallfreðar sögu.1)
í Kjalnesinga sögu og Gunnars sögu Iveldugnúpsfifls
koma firir sögur um viðureign sögukappanna við
blá-menn, sem eru mjög svipaðar sögunni um glímu
Finn-boga við blámanninn i Finnboga sögu, 16. k. Báðar þessar
sögur eru að öllum líkindum ingri enn Finnboga saga,
og ef hjer er nokkuð samband á milli sagnanna, þá er
Finnboga saga lijer vist fremur veitandi en þiggjandi.
Af því að Finnboga saga hefir haft firir sjer
Gunn-laugs sögu, enn sú saga er naumast eldri enn frá
ofan-verðri 13. öld, leiðir, að Finnboga saga getur varla verið
eldri enn frá firstu árum 14. aldar. Til liins sama bendir
það, að sagan hefur bersínilega orðið firir áhrifum af
riddarasögum. Þetta kemur ekki oft, enn þó stundum
fram i orðfæri sögunnar, t. d. þar sem segir, að Finnbogi
hafi farið sæmdarför til Hálconar jarls „ok fengit liina
ágæztn hcins frændkonu" (29. k., Gering bls. 5315), eða
þegar sagt er um Þorkel Sigurðsson: „ok þótti hann þá
brátt atþijðligri fijrir sakir siðferðis" (k. 30, bls. 5410).
Silkitjatdið, sem Finnbogi slírimaður liggur undir úti
á skipi sínu, þegar Urðarköttr bjargar honum, stafar
og frá riddarasögum. Norðmenn höfðu aldrei silkitjöld
á skipum sínum. Sbr. hsing tjaldanna i Clari sögu,2) og
Konráðs sögu keisarasonar (2. k.), þar segir, að
Kon-ráðr hafi liaft „silki at seglum", er hann sigldi til
Mikla-garðs.3) Þó er þess getið i Noregskonungasögum um
konunga, t. d. Sigurð Jórsalafara, að segl þeirra liafi
verið pelli sett.4) Eflaust er það lílca skáldskapur
liöf-undarins og tekið eftir riddarasögum, er hann lætur
1) Hallfrs., 7. k., Forns., 100.—101. bls. — 2) Útg. Cederschiölils
í Saga-BiblioUiek, 9,—11. kap. — 3) Konr., 2. k., Fs. Suðurl. 48 au. —
i) Fms. VII., 94. k.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>