- Project Runeberg -  Bóndinn á hrauni /
42

(1908) Author: Jóhann Sigurjónsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

42 JORUNN Þetta segir þú við hana móður þína! LJÓT Þú mátt ekki reiðast við mig, mamma-Eg veit, að þú hefir breytt eins og þér fanst vera réttast. JÓRUNN Það er ekki mikið varið í þann mann, sem flýr undan forlögunum. Það hefði ekki orðið mér til neinnar gæfu að búa með honum — og eg get ekki kosið mér betri mann en föður þinn, — þegar tvær manneskjur búa saman alla æfina með þeim einlæga ásetningi að gera hver sína skyldu, þá vex kærleikurinn eftir því sem árin líða Þegir. Eg hefi sagt þér þetta til þess að þú gætir hugsað um það, en ef þú ert sannfærð um að þú breytir rétt í því að fara ekki að ráðum foreldra þinna, þá verður það svo að vera. LJ ÓT þegir.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Tue Jun 2 10:50:53 2026 (www-data) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/sjhrauni/0046.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free