- Project Runeberg -  Bóndinn á hrauni /
113

(1908) Author: Jóhann Sigurjónsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

113 segi þér, Ljót. Það hefir alt af verið mín hugsun, að þú tækir við jörðinni. Þegar þú lofaðir mér í gær að giftast Hálfdani, fanst mér, að allar mínar óskir væru uppfyltar — eg var himinglaður. — Það var ekki eingöngu vegna þín, það var eins mikið vegna jarðarinnar — :og svo ætlarðu að fara þegar ólánið dynur á. Hefirðu litið í kringum þig — það er hvert einasta hús hrunið. — Gætirðu skilið við gamlan föður þinn einn og yfirgefinn — það væri að leggja föður þinn í gröfina — og handa hverjum ætti eg þá að byggja upp jörðina, ef þú vilt ekki búa á henni, — þá væri jafngott að láta öll húsin rotna niður í moldina. 'LJÓT Þú veizt ekki, hvað mér þykir vænt um hann, pabbi. Mig hefir oft dreymt, að fjöllin hryndu og að það opnaðist fyrir mér nýr heimur. Í nótt hrundu fjöllin. SVEINUNGI snýr sér frá Ljót Þú getur farið inn í tjaldið. Eg vil Jóh. Sigurjónsson: Bóndinn á Hrauni. 8

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Tue Jun 2 10:50:53 2026 (www-data) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/sjhrauni/0117.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free