Full resolution (TIFF) - On this page / på denna sida - Íslenzk Kappakvæði, forts. (Jon Þorkelsson) - - III. Kappakvæði Þórðar Magnússonar á Strjúgi
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
380
S* erindi. Sjá Fjósarímu 52 erindi.
6. erindi (sbr. Allrakappakvæði 2 erindi). Pað er vist einginn efi
að Pórður hefur að eins þekt Skáld-Helga eptir rímunum, en
ekki eptir sögu Helga, sem einginn veit hvort nokkurn tíma
hefur verið færð í letur. ’A Grænlandsannál Björns á Skarðsá
er auðséð, að Björn þekkir sögu Skáld-Helga ekki af öðru en
rímunum, og þá er ólíklegt að Pórður hafi gert betur svo sem
hálfri Öld áður. Skáld-Helga rímur eru æði gamlar, og geta
vel verið frá fjórtándu old, og tilgáta Einars Bjarnasonar að þær
sé eptir séra Thomas Snorrason, sem annálar segja að dæi
1363, gæti timans vegna vel verið rétt, ef það væri ekki dálítið
ef ásamt, hvort seinustu vi surnar, sem segja að höfundur
rím-nanna heiti Thomas, heyri rímunum til, þar þær eru með öðrum
hætti. Rímurnar pr. í GrhM. H. 419-575.
7-10. erindi. Sbr. Vísnaflokk Bergsteins 23-24 erindi. Sjá
Fjósarímu 40-42 erindi.
11. erindi. Sbr. Allrakappakvæði 5 erindi. Finnboga ramma vérður
Pórður annaðhvort að þekkja af sögunni sjálfri eða af sögnum,
því að hinar elstu Finnboga rímur, sem sögur fara af eru eptir
Guðmund Bergþórsson (d. 1705). Eru þær 24 að tölu og eru
ortar í Keflavík undir Jökli 1686. Pær byrja svo:
Hleiðólfs renni eg hlunna glað.
Kask. Nr. 89 8vo (brot) skr. 1764.
ÍBfél. Nr. 274. Svo (fornar og fúnar).
293. 8vo (með hendi Jóns
Kle-mensson á Kaldrana 1858).
316. 8vo (skr. 1821-1822).
Deild á ísl. Nr. 143. 8vo
167. 8vo (brot).
Aðrar Finnboga rímur hefur ort ’Asmundur Sigurðsson 1879
Pingeyingur og segir (19, 3) að þær "þiggi vist í skjóli
Krist-jáns Porsteinssonar". Pær eru 19 að tölu, og eru prentaðar
á Akureyri 1879.
12-13. ørindi. Sjá Fjósarímu 49 erindi.
14-15. erindi. Porgeir Hávarsson og Pormóð Kolbrúnarskáld þekkir
Pórður eptir Fóstbræðra sögu án efa, því að þær einu rímur,
sem menn hafa sögur af eru ekki eldri en frá 18 öld, ortar af
’Ärna Böðvarssyni á Ökrum 1765, fyrir Jón ’Arnason sýslumann
á Ingjaldshóli. Eru þær 22 að tölu, og byrja svo:
Herjans læt eg hörna fjörð.
’I rímunum bindur ’Arni nafn sitt á þessa leið:
Nykra hallar næfur blått i
naitôin Grana freytir, n r
sumarit lætur seggjum dátt, a
svo eg skrifa heiti.
Eímurnar eru til í safni Jóns Sigurðssonar.
16. erindi. Króka-Ref getur Pórður bæði hafa þekt eptir sögunni
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>