Full resolution (TIFF) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Jón Jónsson: Ragnarr loctbrók. 265
sannleikann, en þar sem Jessen heldur, að þetta hafí komid
snemma upp, jafnvel á 9. og 10. öld, þá heldur Storm hinu
fram, ad "Ragnarr lodbrók" og "Lodbrókarsynir" hafi eigi
verid ordnir svo vídfrœgir á þeim tima, ad þjódhöfdingjar
hafi þá hirt um ad smida sér ættartölur frá þeim, heldur hafi
sú sýki komid upp í íslenzkum höfdingja-ættum á 12. öld
og eftir þad. Fjarri fer því, ad Storm haíi fært fullnægjandi
rök fyrir þessari skodun sinni (eda tilgátu), enda er
áreid-anleiki Ara fróda svo alment vidurkendur af merkustu
vísindamönnum í norrænum frædum, ad þad þarf meira en
litlar líkur til þess ad gjöra vitnisburd hans ad marklausum
hégóma, en hann er hinn fyrsti íslenzki ættfrædingur, er vér
vitum ad rekur ætt sina til "Ragnars lodbrókar". Enginn,
sem rannsakad hefir rit Sturlu fórdarsonar, hefir heldur vænt
þann mann um visvitandi ósannindi, en hann hefir talid
ættir þeirra Höfda-J>órdar og Audunar skökuls til "Ragnars
lodbrókar". Samt er þad óneitanlegt, ad þessar ættartölur,
er sídar voru nefndar, eru ósamkvæmar ættartölu Ara
(ætt-lidirnir færri), en hins vegar er ættartala Ara i bezta
sam-ræmi vid ættartölu Haralds hárfagra frá "Ragnari
lod-brók", er finst i ritum Snorra Sturlusonar. Osamkvæmni
kemur lika fram i íslendingabók Ara, þar sem "Sigurdr
Ragnars son lodbrókar" verdur eftir ættartölunni þrem ættlidum
á undan "ívari Ragnars syni lodbrókar" (o: Ingvari f 871).
J>etta má skýra á tvennan hått : annar er sá, er Storm og
flein sagnfrædingar nú á dögum fylgja, ad ættartölurnar sé
tilbúningur, og yrdi þá lítid úr sanngildi hinnar islenzku
arfsagnar, sérstaklega Landnámu, sem oft hefir þó verid talin
áreidanlegasta fornrit — en hinn er så, ad tveimur eda
fleirum ósamtida fornmönnum sé ruglad saman, þar sem um
"Ragnar lodbrók" er ad ræda. Nú lúta allar likur ad því,
ad i sögunum um "Ragnar lodbrók og sonu hans" sé mörgum
fornaldarhetjum (samtida og ósamtída) slengt saman, eins og
ádur hefir verid synt fram á og hér verdur enn tekid fram.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>