Full resolution (TIFF)
- On this page / på denna sida
- Svartur á Hofstöðum (Jón Þorkelsson)
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has been proofread at least once.
(diff)
(history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång.
(skillnad)
(historik)
Svartur á Hofstöðum.
Fyrir svo sem tíu árura þektu menn Skaufhalabálk
ad eins eptir einu handriti frá 16. öld (AM. 603. 4:to) og
vantadi þar þó nidurlag kvædisins. Höfdu menn þá þad
lag, ad menn feldu ad nidurlagi vid kvædid, þar sem i
vantadi, visuhelming einn, sem Björn á Skardsá tilfærir i
Grænlandsannál sinum, og segir ad sé "ending" Skaufhala-
bálks, sem kvedid hafi Einar fóstri, skald Björns Jórsala-
fara Einarssonar (d. 1415), og töldu menn svo, ad Einar
hefdi ort þann Skaufhalabálk, er nú þekkjum vér. En visan
hjá Birni er svo:
Hefur balk þenna ort ófimlegur
og barngælur Einar fóstri.
Nu vildi svo til, ad eg fann 1887 á Rasks safni 87.
8:vo nytt handrit af Skaufhalabálki, þegar eg var ad vida
ad mér efni i rit mitt um kvedskap á íslandi á 15. og 16.
öld *). Er handrit þad ritad á ad gizka 1730—40 af séra
Einari Hálfdanarsyni á Kirkjubæjarklaustri (d. 1752); er
kvædid þar heilt ad nidurlagi og öllu, og nokkrum erindum
fyllra ad auki en i hinu handritinu. Kallast kvædid í þessu
handriti Refsbálkur, en ad nidurlagi segir þad hér sjálft
til, ad þad sé ekki ort af Einari fostra, eins og menn höfdu
ætlad eptir ordum Björns á Skardsá, heldur af Svarti á
Hofstöðum:
Hefur balk þennan mér til gamans
og barngælur en mannþuretar
sett og samid meingi ófródu.
Svartur á Hofstödum, Mun eg nu þagna.
Eptir ad þetta var fundid, vandadist nú nokkud málid,
því ad mönnum var ekki kunnugra um Svart en um Einar
fostra, og vissu menn Svarts þá hvergi getid annarsstadar en
á þessum stad, en á móti stódu ord Björns á Skardsá, sem
f) Om digtn. på, Isl. o. s. v. Kh. 1888.
ARKIV FÖ» NOBÐftX FILOLOGI XV, NT FÖLJD XI.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Project Runeberg, Sat Dec 9 02:21:45 2023
(aronsson)
(diff)
(history)
(download)
<< Previous
Next >>
https://runeberg.org/anf/1899/0248.html